Við veitum góða þjónustu með jákvæðu viðmóti og virðingu
Birta lífeyrissjóður leggur áherslu á að veita sjóðfélögum framúrskarandi þjónustu. Starfsfólk Birtu býr yfir sérfræðiþekkingu á lífeyrismálum og lánveitingum.
Þjónustustig sjóðsins er hátt og mælist til dæmis þjónustan á skrifstofu sjóðsins með hæstu einkunn sjóðfélaga. Að baki árangurs liggur markviss vinna og fræðsla til starfsmanna við að veita framúrskarandi þjónustu, sama hvort hún er veitt á staðnum eða með rafrænum lausnum. Birta leggur áherslu á að bjóða upp á notendavænar rafrænar lausnir sem sjóðfélagar geta nýtt sér þegar þeir sækja upplýsingar um stöðu sína hjá sjóðnum, sækja um lífeyri, séreignarsparnað eða lán.
Árið 2020 hefur að mörgu leyti verið áskorun fyrir starfsmenn sjóðsins vegna COVID-19 heimsfaraldurs. Aðgengi að skrifstofu sjóðsins hefur að stórum hluta ársins verið takmarkað vegna samkomutakmarkana en að sama skapi hefur aðgengi sjóðfélaga að persónulegri þjónustu verið fylgt eftir með samvinnu og vilja starfsmanna, ýmist með ráðgjöf um rafræna þjónustu, símtölum eða tölvupóstsamskiptum.
Til að þjónusta sjóðfélaga sem best er stöðugt unnið að endurbótum á vefsíðunni, birta.is. Umferð á vef sjóðsins jókst töluvert á meðan aðgengi skrifstofu var takmarkað eða um 21% á milli ára.
Birta lífeyrissjóður tekur á móti fjölda umsókna á hverju ári ásamt því að veita ráðgjöf til sjóðfélaga
Gildin leiðbeina okkur um hvernig á að gera hlutina og skilgreina hvað við stöndum fyrir
Gildum Birtu er ætlað að styðja við stefnu stjórnar og leiðbeina starfsfólki um það hvernig við gerum hlutina og skilgreina hvað við stöndum fyrir. Gildin, sem sett eru af stjórn að höfðu samráði við starfsfólk, eru mikilvægt stjórntæki sem við styðjumst við í daglegum viðfangsefnum og stórum ákvörðunum.
Við hlítum lögum og reglum sem um starfsemina gilda og tryggjum jafnræði á meðal hagaðila með samræmdum starfsvenjum. Verklagsreglur og vinnulýsingar eru vel ígrundaðar og við fylgjum þeim. Við lýsum því sem við gerum á þeim faglega grunni sem verklagsreglur og vinnulýsingar byggja á. Við höldum trúnað við sjóðinn og upplýsum ekki um það sem leynt á að fara.
Ábyrgð fylgir skylda og skuldbinding um að gera það sem okkur er veitt umboð til að gera. Að fylgja verkefnum eftir af skyldurækni og hollustu við sjóðinn. Við kennum ekki öðrum um og leitumst við að leysa það sem við getum af ábyrgð.
Við stundum viðskipti af heilindum. Við beitum ekki bolabrögðum, óviðeigandi þrýstingi eða þvingun til að ná markmiðum okkar. Við afvegaleiðum ekki umræðuna okkur í hag heldur viðurkennum mistök til að læra af þeim og við tilkynnum um hagsmunaárekstra. Við horfum fyrst og fremst til hagsmuna sjóðsins.
Traust er óskagildi okkar, það gildi sem heldur starfsemi Birtu gangandi, frumskilyrði í öllu okkar starfi. Við viljum byggja upp traust og viðhalda trausti allra hagaðila.
Starfsemi Birtu þjónar fyrst og fremst íslenskum neytendamarkaði
Birta lífeyrissjóður veitir tryggingavernd og fjármálaþjónustu á íslenskum neytendamarkaði. Við gætum hagsmuna sjóðfélaga sem neytenda og verndum sjóðfélaga eins og neytendur skv. lögum um neytendakaup. Við sundurgreinum markaði sem Birta þjónustar með eftirfarandi hætti:
Samtryggingardeild Birtu veitir lífeyristryggingar (lágmarks tryggingavernd) skv. samþykktum og lögum þar um og telst sá þáttur veigamestur í starfsemi Birtu. Um 100.000 einstaklingar njóta tryggingaverndar samtryggingardeildar Birtu þar sem tryggingaverndin ræðst af uppsöfnuðu iðgjaldi yfir starfsævina. Ef horft er til iðgjalda, eigna og lífeyrisgreiðslna er hlutdeild Birtu á þessum markaði 8,2%. Tryggingaverndin er hluti af kjarasamningsbundinni aðild launamanna að sjóðnum samkvæmt samþykktum og lögum um lífeyrissjóði. Þar að auki geta aðilar, sem hvorki eru bundnir kjarasamningum aðildarfélaga Birtu né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum, greitt til samtryggingardeildar Birtu.
Séreignardeild Birtu veitir viðbótartryggingavernd, oft nefnt séreignarsparnaður, með samningum um tryggingavernd, sem er umfram þá lágmarkstryggingavernd sem samtryggingardeild Birtu veitir. Alls 30.543 rétthafar eiga hlutdeild í séreignardeild Birtu og 1.561 rétthafi í tilgreindri séreignardeild. Ef horft er til iðgjalda, eigna og lífeyrisgreiðslna er hlutdeild Birtu á þessum markaði 2,2%.
Samtryggingardeild Birtu veitir fasteignalán til sjóðfélaga gegn veði í fasteignum í samræmi við lög nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda. Um fjögur þúsund sjóðfélagar hafa tekið fasteignlán hjá Birtu og ef tekið er tillit til 71 milljarða eignar Birtu í fasteignalánum til neytenda þá er hlutdeild á 1.800 milljarða húsnæðislánamarkaði vera 3,9%. Markaðshlutdeild viðskiptabanka er um 50%, Íbúðalánasjóðs um 20% og lífeyrissjóða um 26% ásamt öðrum minni aðilum.