Launamenn, atvinnurekendur og þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi skulu greiða iðgjöld í lífeyrissjóð frá 16 ára til 70 ára aldurs. Aðild að Birtu lífeyrissjóði byggist á ákvæðum kjarasamninga stéttarfélaga, aðild fyrirtækja eða á almennum forsendum. Í sjóðnum eru launamenn sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum og/eða byggja starfskjör sín á kjarasamningum stéttarfélaga. Þeim er líka heimil aðild sem hvorki eru bundnir kjarasamningum tengdra stéttarfélaga né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum en óska eigi að síður eftir aðild að sjóðnum.
Í árslok 2020 áttu 98.745 manns réttindi í samtryggingardeild Birtu lífeyrissjóðs. Á árinu 2020 greiddu 18.205 iðgjald til samtryggingardeildar en 18.284 árið 2019. Virkir sjóðfélagar voru 16.014, það er að segja þeir sem greiddu að jafnaði iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum. Alls greiddu 5.703 launagreiðendur iðgjöld og námu iðgjaldagreiðslur til samtryggingardeildar 17.193 milljónum króna að meðtöldum réttindaflutningi og endurgreiðslum. Framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði nam 181,7 milljónum króna á árinu.
Á árinu 2020 námu iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, 868 milljónum króna. Það er 2% aukning frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, námu 491 milljón króna á árinu 2020.
| Sérhæfð byggingarstarfsemi | 13,3% |
| Bygging húsnæðis, þróun bygginga | 9,5% |
| Opinber stjórnsýsla | 8,3% |
| Sala, viðgerðir og viðhald á vélum | 5,9% |
| Framleiðsla á málmvörum | 5,1% |
| Heildverslun | 4,8% |
| Smásöluverslun | 4,6% |
| Rafmagns-, gas- og hitaveitur | 4,5% |
| Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum | 3,1% |
| Matvælaframleiðsla | 3,0% |
| Framleiðsla málma | 2,7% |
| Starfsemi arkitekta og verkfræði | 2,6% |
| Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni | 2,5% |
| Veitingasala og -þjónusta | 2,3% |
| Fjarskipti | 1,7% |
| Flutningar á sjó og vatnaleiðum | 1,6% |
| Annað | 24,5% |
| Atvinnuleysistryggingarsjóður | |
| Ríkissjóður Íslands | |
| Marel hf. | |
| Rarik ohf. | |
| Rio Tinto á Íslandi hf. | |
| Samskip hf. | |
| Landsvirkjun | |
| Kaupfélag Skagfirðinga | |
| Veitur ohf. | |
| Samkaup hf. | |
| Norðurál Grundartangi ehf. | |
| Ístak hf. | |
| Íslenskir aðalverktakar hf. | |
| N1 ehf. | |
| Byggingarfélag Gylfars/Gunnars hf. | |
| Sýn hf. | |
| Brimborg ehf. | |
| Securitas hf. | |
| Rafmiðlun hf. | |
| Origo hf. |