Hrein eign samtryggingardeildar Birtu var 472.090 milljónir króna í árslok 2020. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildarinnar var 12,7% á árinu sem samsvarar 8,9% raunávöxtun.
Myndin sýnir vöxt eigna samtryggingardeildar á árinu 2020. Í upphafi árs stóðu eignir í 414.607 milljónum króna. Þá námu iðgjaldagreiðslur á árinu 2020 17.375 milljónum króna. Á móti var greiddur lífeyrir að fjárhæð 12.815 milljónum króna. Nettóinnflæði til deildarinnar nam því 4.560 milljónum króna á árinu. Þá námu hreinar fjárfestingartekjur yfir þetta tímabil 53.640 milljónum króna og rekstrarkostnaður 717 milljónum króna. Í árslok 2020 stóð hrein eign deildarinnar í 472.090 milljónum króna og hækkaði því á milli ára um 57.483 milljónir króna eða um 13,9%.
Taflan sýnir nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar á árinu 2020.
Nafnávöxtun | Raunávöxtun | |
---|---|---|
Skuldabréf með ábyrgð ríkissjóðs | 7,3% | 3,7% |
Skuldabréf bæjar- og sveitarfélaga | 7,2% | 3,6% |
Skuldabréf lánastofnana | 8,5% | 5,0% |
Skuldabréf fyrirtækja | 5,5% | 1,9% |
Fasteignaveðtryggð skuldabréf | 6,2% | 2,5% |
Innlend hlutabréf | 21,6% | 17,5% |
Erlend hlutabréf | 23,7% | 19,5% |
Sérhæfðar fjárfestingar | 5,1% | 1,5% |
Taflan sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu og fjárhæðir þeirra, annars vegar í árslok 2020 og hins vegar í árslok 2019.
Í árslok 2020 | Í árslok 2019 | |||
---|---|---|---|---|
Hlutfallsleg skipting | Í milljónum kr. | Hlutfallsleg skipting | Í milljónum kr. | |
Innlán | 1,7% | 8.031 | 2,0% | 8.193 |
Ríkisskuldabréf | 16,4% | 77.071 | 19,3% | 79.241 |
Skuldabréf sveitarfélaga | 3,6% | 16.873 | 4,2% | 17.066 |
Skuldabréf lánastofnana | 1,8% | 8.583 | 2,2% | 9.226 |
Skuldabréf fyrirtækja | 6,2% | 28.987 | 7,1% | 29.202 |
Fasteignaveðtryggð skuldabréf | 21,7% | 101.893 | 19,9% | 81.738 |
Innlend hlutabréf | 13,7% | 58.623 | 14,4% | 53.582 |
Erlend hlutabréf | 28,7% | 140.574 | 25,2% | 108.813 |
Sérhæfðar fjárfestingar | 6,3% | 29.493 | 5,8% | 23.698 |
Þar af erlendar eignir | 34,5% | 162.194 | 32,9% | 135.329 |
Hrein eign séreignadeildar var 17.742 milljónir króna í árslok 2020 og jókst um 1.280 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 995.860 milljónum króna á árinu 2020.
Sjóðurinn býður upp á þrjár mismunandi sparnaðarleiðir í séreignadeild. Þær eru innlánsleið, skuldabréfaleið og blönduð leið. Í blönduðu leiðinni eru bæði skuldabréf og hlutabréf á meðan eignir skuldabréfaleiðarinnar eru nánast eingöngu skuldabréf auk lítils hluta innlána. Þá eru eignir innlánsleiðarinnar, eins og nafnið gefur til kynna, einungis innlán.
Nafn- og raunávöxtun leiðanna á árinu 2020 ásamt 5 og 10 ára meðaltali hreinnar raunávöxtunar má sjá á myndinni hér fyrir neðan.
Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar var 1.562 milljónir króna í árslok 2020 og jókst um 603 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 29 milljónum króna á árinu 2020.
Að svo stöddu er einungis ein sparnaðarleið í boði fyrir tilgreinda séreigndeild en um er að ræða blandaða leið hlutabréfa og skuldabréfa. Þá er gert ráð fyrir því að sjóðfélagar tilgreindu séreignardeildarinnar eigi kost á því um mitt þetta ár að velja sömu sparnaðarleiðir og eru í boði fyrir sjóðfélaga hinnar hefðbundnu séreignadeildar Birtu.
Nafn- og raunávöxtun leiðarinnar á árinu 2020 ásamt 4 ára meðaltali hreinnar ávöxtunar má sjá á myndinni hér fyrir neðan.